
Þjóðerni
Íslenskur
Menntun
Ballettakademien í Stokkhólmi, Listaháskóli Íslands og skiptinám við SNDO í Amsterdam.
Reynsla
Ásgeir gekk til liðs við Íslenska dansflokkinn haustið 2010 og starfaði með dansflokknum frá 2010 – 2013 og 2014 – 2017. Á þessum tíma hefur hann tekið þátt í fjölmörgum uppfærslum og starfað með fjölda danshöfunda. Ásgeir tók aftur til starfa hjá Íd vorið 2021 og tók þátt í endurupptöku dansflokksins á Black Marrow og í barnadansverkinu Dagdraumum.
Hann hefur dansað í uppfærslum fjölda annarra listamanna og dansflokka, má þar m.a. nefna Shalala, Sigríði Soffíu, Melkorku Sigríði Magnúsdóttur/Milkywhale, Anton Lachky Company og Peeping Tom.
Sem danshöfundur hefur hann unnið nokkur verk í samstarfi við aðra höfunda. Okkar á Milli og Retrograde ásamt Ingu Maren Rúnarsdóttur, Júlíönnu Láru Steingrímsdóttur og Lydíu Grétarsdóttur, í uppfærslu Menningarfélagsins Samyrkja. Á vit… og Óttu ásamt dönsurum úr Íslenska dansflokknum og verkið Endurminningar Valkyrju ásamt Cameron Corbett í uppfærslu listahópsins Endurnýttar væntingar.