
Þjóðerni
Íslensk
Nám
B.A. frá Listaháskóla Íslands, Amsterdam University of the Arts og Danslistarskóli JSB
Reynsla
Erna hefur unnið með fjölda danshöfunda og listamanna eins og Ernu Ómarsdóttur, Steinunni Ketilsdóttur, Katrínu Gunnarsdóttur, Brogan Davison, Athanasia Kanellopoulou, Eleonore Lachky, Ásrúnu Magnúsdóttur og Alexander Roberts. Hún hefur einnig verið að skipuleggja og setja upp listasýningar í Reykjavík og Mexíkóborg ásamt Otho Muñiz myndlistarmanni.
Verk nr. 1 eftir Steinunni Ketilsdóttur og Pottþétt myrkur eftir Ernu Ómarsdóttur og Valdimar Jóhannsson eru fyrstu sýningar hennar með Íd.